BHM:
Hámark 50.000.- á hverju 12 mánaða tímabili
Blaðamannafélag Íslands:
Greitt er allt að 112.500 kr. á ári samkvæmt nánari reglum. Skilyrði að meðferðin sé að læknisráði og þarf að framvísa beiðni frá trúnaðar- eða heimilislækni um að viðkomandi hafi þurft á meðferðinni að halda. Greitt fyrir 15 skipti á hverjum tólf mánuðum að hámarki 7.500 kr. fyrir hvert skipti.
BSRB:
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sálfræðingi. Greiddur er helmingur reiknings (þess hluta sem sjóðfélaginn greiðir), þó að hámarki 80.000 kr. á ári.
Efling:
Greitt er allt að kr. 10.000,- fyrir hvert skipti þó aldrei meira en 75% af kostnaði í allt að 15 skipti á hverjum 12 mánuðum.
Flugfreyjufélag Íslands:
Greitt er allt að kr. 4.000,- af kostnaði sjóðsfélaga í hvert skipti. Hámarksendurgreiðsla er kr. 40.000.- á hverju 12 mánaða tímabili.
Hlíf verkalýðsfélag:
Fyrir hvert skipti hámark 6.000.-, þó aldrei meira en 50% af kostnaði í allt að 15 skipti á
hverjum 12 mánuðum.
Kennarasamband Íslands:
Greiddur er stykur til sjóðsfélaga að hámarki 50.000.- á hverju 12 mánaða tímabili.
Póstmannafélag Íslands:
Fyrir hvert skipti 4.500.- þó aldrei meira en 50% af kostnaði í allt að 15 skipti á ári.
Rafiðnaðarsamband Íslands:
Fyrir hvert skipti 40% af kostnaði í allt að 25 skipti.
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja:
Styrkurinn er greiddur fyrir 10 skipti á hverjum 12 mánuðum að hámarki kr. 11.000 fyrir hvert skipti.
Sameyki:
Greitt er 50% af reikning að hámarki 80.000 kr. á almanaksári.
SFR:
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár fær styrk. Greitt er 50% af reikning að hámarki 80.000 kr. á almanaksári.
Verkfræðingafélag Íslands:
Árleg styrkupphæð nemur 75% af árs iðgjöldum viðkomandi sjóðsfélaga, sjá reglur félagsins um heilsustyrki.
VR:
Allt að 55.000.- á ári, veltur á inneign í varasjóði.